Errrrrror
17.12.2007 23:26:47 / Anna Þyrí

fleh

Var að setja inn myndir frá helginni, fór á djammið með Aðalheiði og Guðbjörgu.. segi kannski betur frá því þegar ég er ekki svona þreytt.

 

Myndirnar eru hérna einhvers staðar til hliðar í flokknum Myndir og heitir Djamm í Gumm.

Tjékk it

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 21:33:16 / Anna Þyrí

úff

Ég hef bara voða lítið að segja en ég nenni ekki að sofa strax og get ekki lært meir þannig að ég ætla að blogga.

Það hefur reyndar ekkert gerst sem hægt er að segja frá eins og áður sagði.. en um síðustu helgi komu Birkir Ívar, Kristín, Saga og Adela í heimsókn. Voða kósý bara, fórum í bæinn á jólamarkað sem ég meikaði ekki, alltof mikið af fólki. Það er samt held ég annar markaður hjá dómkirkjunni sem var valinn flottasti jólamarkaður í heimi:O verð nú að tjékka á honum.
Svo fór vikan bara í það að læra, fór í enskupróf á mánudeginum og var að fá einkunn áðan og er bara helvíti sátt, enda ekki hægt að gera betur en 10, ekki það að ég sé nölli því þetta var bara enska 103.. en ég meina, alltaf gaman að fá 10. Svo var íslenska í dag og gekk bara nokkuð vel. Átti svo að fara í sögu á morgun en ég náði mér í streptokokka í síðustu viku og gat ekki lært í 3 daga og því ekki reddí í prófið, og ég fæ að taka það á föstudaginn í staðinn.. þannig að næstu dagar fara bara í að glósa sögu og hlusta á jólalög í kósý herberginu hennar Huldu. Get ekki beðið eftir að komast í frí, það verður samt nú varla frí því Svala þarf þá að byrja að læra fyrir próf þannig að það verður fullt að gera á heimilinu.. en að passa Birtu og taka til í eldhúsinu er nú skárra en að lesa fyrir próf.
Við skreyttum jólatréð í gær, ekkert smá flott! Bara fjólubláar og hvítar kúlur. Ógsl töff.

Annars er þetta framundan:
•    Leikur í Kölnarena á miðvikudaginn,  sem er einmitt síðasti leikurinn sem ég fer á!:(
•    Helga Svala og Heiður í heimsókn og SPICE GIRLS:D
•    Jólin
•    Ísland
•    Lúðrópartý vonandi
•    Brúðkaup
•    Út að borða með acid
•    GAMLÁRS:D

Og svo bara að hitta alla og byrja í skólanum. Get hreinlega ekki beðið eftir þessu öllu saman!

Hlakka til að sjá ykkur:D

    AÞ

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 20:50:00 / Anna Þyrí

sjiiitt

Sælar.

Ég trúi ekki að ég ætli að segja frá þessu á blogginu en here goes.

Andy sem er í liðinu með Robba á svona bmw http://cache.jalopnik.com/assets/resources/2007/01/bmw_1series_3door.jpg og ég er alltaf bara díses flottur bíll! Og ég þarf stundum að skutla þeim út á flugvöll ef þeir eru að fara að spila útileik og þá kemur Andy hingað og skilur bílinn sinn eftir og við förum á okkar bíl. En um daginn þegar ég þurfti að skutla þeim var Svala að nota bílinn þannig að við fórum á bílnum hans Andy. Og ég bara yaay fæ að keyra draumabílinn! En fattaði svo að hann væri beinskiptur og varð smá kvíðin því ég hafði ekki keyrt beinskiptan síðan í bílprófinu í ágúst! En náði að róa mig niður því þetta er nú flottur bíll og svona, örugglega auðvelt að keyra. Og við keyrum á einhvern hliðarveg út frá hraðbrautinni þar sem Vfl rútan ætlaði að sækja þá. Og svo fara þeir út og ég sest við stýrið og starta bílnum, set í fyrsta gír og ætla af stað, en drep á honum. Endurtek leikinn en drep á honum aftur.. og aftur og aftur og svona 7 sinnum í viðbót án djóks. Og það eru fullt af vörubílum fyrir aftan mig að bíða og Andy fer til þeirra og útskýrir og þeir hlæja allir saman, ég er farin að panikka og bara hvað er í gangi? Kræst.. og Robbi bara jeesús minn, haha! Gefðu bara miklu meira bensín og ég bara okeei og reyni en það tekst ekki.. svo spyr hann, bíddu ertu ekki örugglega í fyrsta gír? Og ég júú ég held það.. svo tjékkar hann og nei nei, þú ert í þriðja! Og ég bara sjitt, það hlaut eitthvað að vera. Náði svo að keyra heim án vandræða á draumabílnum. Ég dó úr skömm og þori ekki að horfa framan í Andy núna en hann er einmitt að koma í mat bráðum held ég! Ég ætla að halda mig uppi allan tímann og ekki láta sjá mig.. Ef öll Vfl rútan hefði verið þarna hefði ég bara bókstaflega dáið úr skömm! Þeir hafa pottþétt sagt öllum í rútunni á leiðinni á flugvöllinn frá þessu og nú horfa allir á mig eftir leiki og bara sjiitt, þetta er gellan!
Anyways, vona að ég nái að gleðja einhver hjörtu með þessari sögu.

Annars er bara voða lítið að frétta. Vfl-Valur um daginn og ‘’við’’ unnum með 12. Svo var leikur í gær sem við unnum líka. Svo fer bara að styttast í prófin og ég get ekki sagt að ég sé eitthvað mega spennt. Vona að ég nái að klára öll verkefnin sem ég á að skila núna, en ég mun ekki hafa mikinn tíma um helgina allavega þar sem ég verð ein heima með girls aftur. Ætlum að hafa það kósý, fara í bíltúr til Gummersbach kannski ef einhver vill fá okkur í heimsókn. Ef ekki verðum við bara í Köln Arcaden eins og síðast og horfum á heita gæjann í Jack and Jones=)

Svo get ég ekki beðið eftir Spice girls! Helga Svala og Heiður koma í heimsókn og er planið að fara á tjúttið eftir tónleikana, en ég held að það verði fyrsta djammið mitt.. ég sé ekki fram á að ég fari fyrir það.

Svo sjáumst við bara eftir 5 vikur:D

Tjus

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 13:57:20 / Anna Þyrí

Jeeeee..

.. sús minn!

Hafið þið séð þætti sem heita Cheaters? Þetta er bara mesta lol sem ég veit um. Fjallar um það að fólk kemur til þeirra hjá Cheaters því það heldur að maki þeirra sé að halda framhjá, svo eru detectives að njósna um makann og svo eru þau böstuð og allt brjálað og einhver lúúúði sem er svona stjórnandinn að reyna að vera nice við alla. Þetta er svona Jerry Springer fílingur, fólk fer að slást og það þarf massaða gæja til að stía þeim í sundur. Það er meira að segja heimasíða, cheaters.com..

Allavega, halloween í gær og svona.. hulda klæddi sig sem drakúla og fór í hús og fékk nammi. Svo alltaf þegar ég fór til dyra að gefa börnunum nammi voru kannski 3 krakkar og svo var einn búinn að fela sig og stökk svo fram til að bregða mér:( En nú erum við Hulda og Birta einar heima því skötuhjúin skruppu til Flórens. Ætlum að hafa það ýkt kósý og klára 58 kílóin af íslenska namminu sem Robbi kom með.

Svo eru bara hva, 53 dagar í jólin og erum við búin að redda okkur geðveikum jóladiskum, Svala keypti einn gamlan og geðveikan jóladisk á itunes, svona hátíðlegan.. og við erum að missa okkur í jólalögunum.. held við verðum aðeins að fara að tjilla. Annars er ég ekki alveg að fatta að ég verð ekki heima um jólin, hef alltaf verið hjá ömmu með öllu crewinu, verður skrítið að vera bara 5..

Spennandi framundan:

  • Vfl-Valur í Kölnarena, við Hulda erum búnar að bíða spenntar eftir þessum leik!
  • Indriði og Hanna koma í heimsókn:D
  • 50 cent ef einhver nennir? haha
  • Helga Svala og Heiður í heimsókn 
  • Spice Girls!

Svo er örugglega eitthvað fleira sem á eftir að koma í ljós eða það sem ég er að gleyma.

Held ég hafi bara ekkert meira að segja, Birta er hérna að dansa og tromma við Beyoncé og biður að heilsa.  

Sjáumst eftir 57 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 16:54:02 / Anna Þyrí

NÝTT

Nýjar myndir á www.flickr.com/photos/annathyri

frá sumrinu.. skoðið 


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 10:13:39 / Anna Þyrí

hehe

verð að segja ykkur frá aðeins of steiktum draum sem mig dreymdi um daginn..

það var leikur á miðvikudaginn og nóttina fyrir það dreymdi mig að þeir væru að spila.. en þetta var frekar auðvelt þannig að ungu gæjarnir fengu að spila og einhverra hluta vegna, ég líka. og ég var geeðveikt góð, komst alltaf í gegn og fiskaði víti en þegar ég ætlaði að skjóta varð ég máttlaus í höndunum og gat ekki skotið.. og við notuðum ekki bolta, nei nei, við notuðum lokið af krukkunni sem við geymum cheerios-ið í hérna heima, og áttum að kasta þvi svona eins og frispí.. en allavega, ég var samt geðveikt góð og allir ungu gæjarnir bara JÁÁ og fóru svona í röð og ég gaf þeim öllum five, og svo voru robbi og hinir á bekknum og stóðu allir upp og bara JÁÁ ANNAAA! ég vaknaði hlæjandi=)

annars er ekkert merkilegt að frétta.. gréta fór frá mér á þriðjudaginn og ég er ekki frá því að ég sakna ykkar heima meira núna eftir að gréta kom.

een leikur á eftir og svona!:D mér finnst það alltaf jafngaman, eins gott að það verði góður matur:$ já mig dreymdi líka í nótt að þeir væru að fara að keppa en lentu í flugslysi og sumir dóu8| spes, dreymir alltaf eitthvað í sambandi við leiki núna..

en ég er hætt

ciao 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.10.2007 10:35:26 / Anna Þyrí

Spice girls

fokk já, ég er að fara á spice girls þann 20. des!! vorum að kaupa miða áðan:haha: ef það er ekki töff þá veit ég ekki hvað.

 

gréta mín kom í gær:D  fórum bara beint í bæinn að kíkja á úrvalið og svo er planið að shoppa almennilega í dag. fórum líka aðeins að tjékka á mannlífinu í gærkvöldi og fórum á uppáhaldsbarinn minn, all*bar*one.. og þar sem íslenskt kvenfólk er miklu fallegra en það þýska fengum við fría drykki. okkur var líka boðið að vera eftir þegar barinn lokaði og láta 2 barþjóna hella í okkur og ''spjalla'' en við afþökkuðum pent.

anywho, farnar í bæinn

 

tjus, EKKI cheers gréta mín 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 18:41:44 / Anna Þyrí

sælar

Aðeins TVEIR DAGAR í kvikindið:D:D

get ekki beðið. við erum með tryllta myntu í garðinum þannig að við neyðumst til að drekka mohito.

annars er lítið að gerast hér, er bara að læra, sækja huldu í skólann, elda, skreppa út í búð og svona á daginn.. mætti samt vera duglegri í lærdómnum en það gengur samt vel. een sökum leti þarf ég að skrifa 2 ritgerðir akkúrat núna um helgina þegar gréta er hér"/ ég gæti til dæmis verið að gera eina núna en nei nei, best að blogga. sorry gréta

við fórum í keilu um daginn. ég vann.. not. byrjaði geðveikt vel, ætlaði að vera í harðri keppni við robba een svo fór ég að herma eftir svölu og hitti svona 2 keilur að meðaltali. lenti samt í öðru sæti";)

ég er farin að hlakka alltof mikið til jólanna.. en þar sem það er bara 9. október hef ég ekki leyft mér að hugsa um þau.. var í heimsókn hjá frænku svölu um daginn og hún átti geðveikan jóladisk sem ég fékk að setja á tölvuna. svo var ég að gefa birtu að borða og við vorum að hlusta á itunes á shuffle og svo kemur jólalag og birta fílar það svona rosalega og fer að dansa trylltan dans. og ég bara æi sorry, verð að slökkva. svo eru líka búðirnar komnar með jólaskraut og sumir nágrannarnir komnir með jólaskraut út í glugga!! aðeins of klikkað lið hérna..

anywas, farin að finna einhverja aðra ástæðu til að ekki skrifa ritgerð..:$

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 15:22:58 / Anna Þyrí

Nýjar myndir

Hérna http://flickr.com/photos/14015384@N06/ eru myndir frá spáni. svo koma fleiri myndir frá sumrinu á sama link.. þannig að fylgist með!

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 21:27:48 / Anna Þyrí

beibí

jæja krakkar.. líður hálfkjánalega hérna, sit í tölvunni og finn ekkert að gera á meðan svala og robbi tjatta við gæja úr liðinu og konur þeirra og drekka vín.. ég meina, ég gæti alveg joinað en hey, ég tala ekki þýsku. fokking fokk! 

síðasta vika fór bara í lærdóm og að baka vondar kökur og taka til í eldhúsinu. svala kom svo heim í gær við mikinn fögnuð en þá byrjaði pirringurinn haha.. þessi unga kona getur orðið roosalega pirruð út af engu en það er oftast fyndið og við hulda gerum mikið grín að henni..

í dag fórum við á gummersbach-eitthvað.. og þeir unnu með 7 eða e-ð. svo er smá partý hérna núna, svala er í rííífandi.

oog hey ég setti fulllt af myndum á snapfish í gær en ég efast um að ég geti copyað þær hingað inn þannig að ég verð bara að setja þær á pbase eða e-ð og redda því þannig.

annars hef ég ekkert meira að segja og er farin að redda tónlist fyrir pakkið

tjus 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 20:45:17 / Anna Þyrí

hóókei þá

mér leiðist eitthvað þessa dagana, er ein heima veik og ég veit að það er fulllllt af fólki þarna úti sem vill heyra hvernig líf mitt er hér í Kölnarborg.. not. anyways, þannig að ég ákvað að blogga.

 

jæja, er búin að vera hér í næstum mánuð.. við svala fórum til danmerkur í 10 daga og höfðum það kósý. fórum í nammibindindi en þar sem ég var ein heima mestmegnið af deginum og það var búð í 20 metra fjarlægð datt ég ansi oft í það og fékk mér súkkulaði. svo þegar við komum til kölnar aftur fékk ég pakka frá mömmu með ökuskírteini og íslensku nammi..

svo átti ég afmæli þegar við vorum í dk.. frekar næs afmælisdagur bara, fór í bæinn með svölu og valdi mér ammógjöf, fengum okkur svo pítsu á ítalíu og birta nagaði pítsuenda með lokuð augun vegna þreytu.. haha krútt. við fórum svo heim til vinkonu svölu þar sem við gistum .. 2 systur hennar voru í heimsókn og endaði ég daginn á að fara með eldri systurinni og vinum hennar í bæinn.  

 

svo kemur gréta mín í heimsókn eftir mánuð:D:D get bókstaflega ekki beðið.

lærdómur kallar 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 17:03:55 / Anna Þyrí

ble

jæja kids and kracks. var næstum hætt við að blogga því mér fannst aðeins of stutt síðan ég bloggaði síðast een ákvað að gera það samt, svona þegar ég hef ekkert að gera. ég fór til þýskalands 17 maí og var þar í svona 10 daga í steikjandi hita. var mest í bænum bara og úti í garði að tana eða leika listir mínar á trampólíninu. við sveil og birta keyrðum svo til århus í grenjandi rigningu.. vá það voru svo mikil læti að við gátum varla talað saman. ég er svo búin að vera hér í hva.. 2-3 vikur og er orðin ansi brún verð ég að segja") við erum hér í píínulítilli íbúð rétt hjá miðbænum þannig að ég fer á næstum hverjum degi í bæinn að finna eitthvað sumarlegt til að vera í þar sem ég kom bara með svarta hlýraboli og er alltaf að kafna úr hita. annars hef ég ekki gert mikið hér, bara hitt ansi marga vini svölu og við erum búnar að borða svona þrisvar sinnum heima, okkur er alltaf boðið í mat.. svo eftir 10 daga eða e-ð förum við til köben í nokkra daga. omg hvað ég hlakka til. svo styttist í spáán:D sjeett það verður svo gaman. en ég hef ekkert meira að segja um mig þannig að ég ætla að segja frá my bestest. Unnur er að vinna hjá Reykjarvíkurborg og finnst það bara fínt held ég. hún og axel eru alltaf happy") svo fer hún til austurríkis til brósa bráðum og ég veit að hún er að deyja úr spenningi. svo þegar við erum báðar heima verður tjúttað allar nætur haha. Rannveig er að vinna á hóteli á laugarvatni og finnst það bara æði. þar eru ekki margir heitir gæjar að hennar sögn en einn þó og ætlar hún sér að næla í hann. Vala er bara í Suður-Frakklandi með Önnu margreti í frönskuskóla og er víst æði hjá þeim. þær eru að spóka sig á ströndinni og ef ég þekki þær rétt þá er ekkert lítið tjútt. Gréta er að reyta arfa hjá þjóbó og háskólanum og þar og er bara sátt held ég. hún er ekkert lítið á tjúttinu eins og venjulega og er alltaf í sleik. hún og dagga eru að plana ferð til spánar eða usa eða e-ð, helv. beyglur:( Magga er að vinna í pennanum og er bráðum að fara að taka bílpróf og alles. hún er með gæjana í röðum á eftir sér eins og venjulega og finnst það nú ekki leiðinlegt. Inger er bara að passa hjá systur sinni á Spáni og verður þar í 2 vikur held ég og ég veit að hún kemur svöört til baka, hún var líka kúkur fyrir.. Ragga er ekki að vinna held ég.. enda hefur hún ekkert tíma til þess þar sem hún er að fara til svíþjóðar með silju vinkonu sinni í tónlistarskóla og svo fer hún beint þaðan held ég til spánar með þóru í spænskuskóla aftur! daamn hvað ég væri til í það. en jææja, kominn tími til að enda þetta fráábæra blogg. HEY OMG GLEYMDI AÐ SEGJA! við sveil fórum á justin á laugardaginn í hamborg og djöööfull var það mikil snilld :haha: hann spilaði í svona 2 og hálfan tíma og tók held ég bara allan nýja diskinn plús þau bestu af gamla.. svo kom timbaland líka og hann ásamt einhverjum dj spiluðu í ''hálfleik'' og það var snilld. samt spes afþví að þetta var eiginlega bara auglýsing á öllu sem timbaland er að producera en það var samt geðveikt, allir stóðu upp og stigu trylltan dans. anyways, hlakka til að sjá ykkur, þið sem verðið heima 14. júlí.

» 11 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 15:50:17 / Anna Þyrí

GusGus:D

vá hvað fólk er eitthvað ÆST í að kommenta hérna"/ held að það sé merki um að síðan sé dauð! allavega vildi bara lýsa yfir tilhlökkun minni.. GUSGUS TÓNLEIKAR Í KVÖLD:D:D sjeett ég er svo spennt! og líka allt fólkið sem ég er að fara með er svo skemmtileeegt:D omgaad rannveig og gretz eru líka að deyja úr spenningi veit ég.. vona að hinir séu jafnspenntir") allavega svo er bara vika eftir af skólanum, svo próf, svo sumarið komið:D anyways farin að finna föt:o lol en okei bæ!

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 14:11:55 / Anna Þyrí

sjeett

kominn tími á blogg? éég held það.. meira en mánuður síðan:o núna er slétt vika síðan ég kom heim frá Boston og ég skal segja ykkur það að ef þetta var ekki skemmtileg ferð þá veit ég ekki hvað! ég efast um að þið viljið heyra e-a leiðinlega ferðasögu en þetta er það sem við m.a. gerðum: Skoðuðum Berklee og Harvard, versluðum aansi mikið, fórum á Blue man group og það munaði svo óógsl litlu að ég hefði verið tekin upp á svið.. ég var ekkert lítið hrædd! við keyrðum um á þremur hvítum sendiferðabílum og vorum eins og mafían og síðasta kvöldið okkar fórum við á japanskan veitingastað þar sem steiktur þjónn eldaði fyrir okkur") Við fórum líka út að borða á cheesecakefactory þar sem ýkt sætur þjónn sá um okkur og Rannveig gerði sig að fífli með catwalkinu sínu haha. Myndir frá ferðinni áttu að vera löngu komnar inná en einhverra hluta vegna tókst ekki að setja þær hingað inn þannig að það er spurning hvort þær muni einhvern tíma sjást o_O restin af páskafríinu einkenndist af bíltúrum og rugli.. á annan í páskum fórum við sveil og mamma á Björk og Hot chip og skemmtum okkur svona líka vel. Ég opnaði ekki bók í fríinu og sjáum til hvort það muni koma niður á mér í prófunum í vor"/ Annars get ég ekki beðið eftir sumrinu! er að fara út eftir bara rúman mánuð og ég get hreinlega ekki beðið. Svo eru bara 2 vikur eftir af skólanum! og það er líka brjáálað að gera þannig að þið munið væntanlega ekki sjá mikið af mér þar sem ég mun sökkva mér í skólabækurnar á næstunni því ég ætla mér ekki að falla >_< segi þetta gott af ruglinu í bili -Anna Þyrí

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 18:31:19 / Anna Þyrí

.

ég nenni ekki að læra, ég nenni ekki að taka til, ég nenni ekki að gera neitt! ég haaata að vera svona löt:(

 annars var helgin bara fín.. á föstudaginn eftir skóla fór ég í skol og klippingu.. reyndar vissi ég ekki að ég væri líka að fara í klippingu en allavega.. ég sagði henni að særa það bara og gera smáá styttur.. en NEI! í staðinn fyrir að vera með sítt og dökkt hár eins og ég var, endaði ég með stutt og appelsínugult hár!!:devil: ég var brjáál, sagði samt náttla ekki neitt við gelluna.. en vá, ég var ekkert lítið ósátt! allavega.. um kvöldið var söngvakeppni í MH en ég beilaði og fór með rannveigu og grétu á Music and lyrics=) bara frekar skemmtileg mynd, skemmtileg lög haha! á leiðinni heim kíktum við í partí hjá halla, þar voru frekar fáir og við vorum eiginlega hálfsofandi þannig að við stoppuðum stutt.

 á laugardaginn, eða í gær, fór ég með rannveigu í smáralind.. við misstum okkur aaðeins, eða aðallega ég. hefði mátt sleppa hinu og þessu en saaamt! draumur minn um að fara með maarga marga peninga til boston ætlar víst að fjúka út í buskann haha. eftir smáralind fengum við okkur ís og ég fór svo heim að punta mig fyrir tónleika ragga bjarna í háskólabíó. það var án djóks ekkert smá gaman! ég beið spennt eftir ''flottur jakki'', meðal annars vegna þess að ragga, hildur og maggi voru bakraddir í því lagi og verð ég að segja að þau hafi rúllað þvi upp") eftir tónleikana fór ég heim og beið eftir að rannveig kláraði að vinna. um hálf 12 kom hún til mín og við fórum til laufeyjar.. ég var búin að hlakka svo mikið til þessa kvölds en það fór ekki eins vel og ég vonaði. ég kom heim um 4 og fór að sofa.

 í dag er ég ekki búin að gera neeitt nema hanga í tölvunni. þetta heldur í mér lífinu þessa dagana: það eru 25 dagar í að þessar tvær komi á klakann

 

fookking djöfull, það er ekki hægt að copya myndir inn á blogg í makka:devil: það eru sem sagt 25 dagar í svölu, huldu og birtu.. eitthvað svipað langt í hildi þurí heeld ég og 29 dagar í boston! við helga svala erum svo búnar að vera á victoriassecret.com að skoða bikiní til að kaupa úti.. við ætlum að vera beibalicious á spáni! okei, herbergið mitt er í rúúst! farin að taka til bæ


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17